Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 143. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 323  —  143. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðisnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðrúnu W. Jensdóttur, Áslaugu Einarsdóttur og Vilborgu Hauksdóttur frá heilbrigðisráðuneyti.
     Með frumvarpinu er lagt til að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 789 kr. eða um 12,5% og nemi 7.103 kr. á hvern gjaldanda í stað 6.314 kr. samkvæmt gildandi lögum. Í athugasemdum sem fylgja frumvarpinu kemur fram að hækkunin sé í samræmi við verðlagsbreytingar á tímabilinu desember 2005 til desember 2006.
    Nefndin fagnar því að sjóðurinn verði nú eingöngu notaður til uppbyggingar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Árni Páll Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Pétur H. Blöndal skrifar undir álit þetta með fyrirvara.

Alþingi, 27. nóv. 2007.



Ásta Möller,


form., frsm.


Ágúst Ólafur Ágústsson.


Þuríður Backman.



Pétur H. Blöndal,


með fyrirvara.


Valgerður Sverrisdóttir.


Ragnheiður Ríkharðsdóttir.



Ellert B. Schram.


Auður Lilja Erlingsdóttir.