Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 234. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 422  —  234. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og skattanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ögmund Hrafn Magnússon frá fjármálaráðuneyti og Dís Sigurgeirsdóttur frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti. Þá hafa nefndinni borist umsagnir frá ríkisskattstjóra, Seðlabanka Íslands, Ríkisendurskoðun, Viðskiptaráði og Samtökum fjármálafyrirtækja. Einnig hafa tilkynningar borist frá Hagstofu Íslands, Félagi löggiltra endurskoðenda og Lögmannafélagi Íslands.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gjaldtökuheimildum laga um aukatekjur ríkissjóðs með hliðsjón af ábendingum frá Fjármálaeftirlitinu og dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Breytingarnar standa einkum í tengslum við lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, lög um alþjóðleg viðskiptafélög, nr. 31/1999, lög um miðlun vátrygginga, nr. 32/2005, og lög um loftferðir, nr. 60/1998. Þá má rekja hluta breytinganna til ákvörðunar ráðherraráðs Evrópusambandsins frá því í sumar sem varðar vegabréfsáritanir.
    Á fundum nefndarinnar kom fram að með breytingum frumvarpsins stæði ekki til að hækka önnur gjöld en þau sem varða vegabréfsáritanir. Við meðferð málsins hafa fulltrúar fjármálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis þó farið þess á leit að nefndin geri þá breytingu á frumvarpinu að við það verði aukið heimildum til töku gjalds vegna útgáfu leyfis til reksturs leiktækjastaða annars vegar og töku gjalds vegna rafrænnar miðlunar á lögregluskýrslum um eignatjón til tryggingafélaga hins vegar. Jafnframt hafa ráðuneytin óskað eftir breytingu á orðalagi í 1. mgr. 14. gr. laganna þannig að gjaldtaka miðist við afgreiðslu umsóknar fyrir vegabréfsáritun í stað vegabréfsáritunar. Gjald þetta er ákvarðað með hliðsjón af ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins frá 1. júní 2006 þar sem gert er ráð fyrir að innheimta gjaldsins fari fram í tilefni af umsókn óháð því hvort áritun er veitt eða hennar synjað.
    Nefndin telur heimild til álagningar gjalds vegna útgáfu leyfis til reksturs leiktækjastaða eiga rétt á sér með tilliti til hliðstæðrar gjaldtöku á öðrum sviðum atvinnurekstrar.Þar sem umsýsla er ekki mikil við leyfisveitingar af þessu tagi telur nefndin rétt að gjaldið verði 5.500 kr., en til samanburðar má nefna að það er mun lægra en gjald fyrir leyfi til veitinga- og gististaðareksturs. Útgáfa leyfis til reksturs leiktækjastaða fer fram á grundvelli laga um lögreglusamþykktir, nr. 36/1988.
    Hvað varðar heimild til töku gjalds vegna rafrænna sendinga lögregluskýrslna telur nefndin að kostnaður vegna umsýslu við innheimtu og vinnslu, þ.m.t. bókhald, eigi eftir að verða miklu meiri en sem nemur tekjum af gjaldinu. Tekur nefndin því ekki undir óskir ráðuneytisins að þessu leyti. Nefndin gerir ráð fyrir að rafræn miðlun skýrslnanna verði gjaldfrjáls til einföldunar fyrir embættin og móttakendur.
    Nefndin telur rétt að breyta orðalagi í 1. mgr. 14. gr. laganna til samræmis við framangreinda ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins (ekki Evrópuráðsins eins og segir í athugasemdum).
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Ögmundur Jónasson skrifar undir álitið með fyrirvara.
    Gunnar Svavarsson, Lúðvík Bergvinsson og Katrín Jakobsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 5. des. 2007.



Pétur H. Blöndal,


form., frsm.


Ellert B. Schram.


Ögmundur Jónasson,


með fyrirvara.



Magnús Stefánsson.


Ragnheiður E. Árnadóttir.


Herdís Þórðardóttir.