um breytingu á lögum nr. 51/1995, um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 12. des.)
1. gr.
Í stað orðsins „hámarksdagpeninga“ í 4. mgr. 1. gr. laganna kemur: óskertra grunnatvinnuleysisbóta.
2. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir takmarkanir á fjölda greiðsludaga skv. 4. mgr. 1. gr. skal fjöldi greiðsludaga
sem heimilt er að greiða í senn vera að hámarki 30 dagar en þó aldrei fleiri en 60 dagar á
hverju almanaksári. Að öðru leyti gildir ákvæði 1. gr.
Starfsmanni sem fær greidd föst laun fyrir dagvinnu frá vinnuveitanda í tímabundinni
vinnslustöðvun í samræmi við ákvæði kjarasamninga um kauptryggingu verkafólks í fiskvinnslu, sbr. einnig 2. gr., er heimilt að sækja um mismun fastra dagvinnulauna og tekjutengdra atvinnuleysisbóta sem hann ætti ella rétt á skv. 32. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, hefði hann skráð sig án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma sem
vinnslustöðvunin varir. Skilyrði er að starfsmaður hafi fengið greidd föst laun fyrir dagvinnu
frá vinnuveitanda í tímabundinni vinnslustöðvun í tíu virka daga samtals eftir 1. janúar 2008.
Fyrsta dag næsta mánaðar skulu greiðslur Vinnumálastofnunar samkvæmt þessari málsgrein
inntar af hendi í einu lagi eftir að tímabundinni vinnslustöðvun lýkur, enda hafi vinnslustöðvun lokið og umsókn starfsmannsins borist Vinnumálastofnun fyrir 23. dag mánaðarins á
undan. Ljúki vinnslustöðvun síðar eða ef umsókn berst síðar skulu greiðslur inntar af hendi
fyrsta dag næsta mánaðar þar á eftir. Sá tími sem starfsmaður fær greiddan mismun fastra
dagvinnulauna og tekjutengdra atvinnuleysisbóta samkvæmt þessari málsgrein dregst ekki
frá því tímabili sem starfsmaður kann að eiga rétt á atvinnuleysisbótum skv. VI. kafla laga
um atvinnuleysistryggingar að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum.
Ákvæði þetta gildir til 31. desember 2009.