Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 674  —  421. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um aðgengi fatlaðra að háskólamenntun.

Flm.: Steinunn Þóra Árnadóttir, Ögmundur Jónasson, Kolbrún Halldórsdóttir.


    Alþingi beinir því til menntamálaráðherra og stjórnenda íslenskra háskóla að ráðist verði í átak til að bæta aðgengi fatlaðra nemenda að háskólum með það að markmiði að fleiri fatlaðir nemendur hefji og ljúki háskólanámi.

Greinargerð.

    Nemendum á háskólastigi hefur fjölgað mjög hratt undanfarin ár. Rannsóknir sýna hins vegar að fatlaðir háskólastúdentar eru hlutfallslega mjög fáir miðað við heildarfjölda fatlaðra í samfélaginu. Því er ljóst að þeir skila sér ekki í gegnum menntakerfið og inn í háskóla í sama mæli og ófatlaðir nemendur. Úr því er nauðsynlegt að bæta.
    Erlendar rannsóknir benda til þess að ein meginástæðan fyrir því sé sú að aðgengi að menntakerfinu hafi ekki verið það sama fyrir fatlaða og ófatlaða nemendur. Bent hefur verið á að menntun fatlaðra nemenda hafi verið lakari en gengur og gerist í hinu almenna skólakerfi og þeir hafi því ekki fengið þann undirbúning sem nauðsynlegur er fyrir háskólanám.
    Enn fremur hafa rannsóknir sýnt að fötluðum nemendum í háskólum erlendis fjölgaði ekki að marki fyrr en sett hafði verið sérstök löggjöf til að tryggja jafnrétti þeirra til náms, ásamt því að fjármagni var varið til þess að tryggja aðgengi þeirra að háskólum.
    Í þeim löndum sem sett hefur verið sérstök löggjöf gegn mismunun er aðgengið og þjónustan best og fjöldi fatlaðra háskólanema mestur. Í kjölfar slíkrar löggjafar hafa háskólar markað sér stefnu í málefnum fatlaðra og byggt upp þjónustu við þá. Því má ljóst vera að stefna stjórnvalda í menntamálum fatlaðra skiptir gríðarlegu máli.
    Undanfarin ár hefur sú jákvæða þróun átt sér stað að nemendum með dyslexíu, langvinn veikindi eða sálræn vandkvæði hefur fjölgað umtalsvert við Háskóla Íslands. Fjöldi hreyfihamlaðra, sjónskertra og heyrnarskertra nemenda hefur hins vegar nokkurn veginn staðið í stað. Til að tryggja fötluðum jafnan rétt til háskólanáms á við ófatlaða þarf að gera átak til að bæta aðgengi að háskólabyggingum, svo og aðgengi að upplýsingum um þá þjónustu sem í boði er fyrir fatlaða nemendur með það að markmiði að fleiri fatlaðir nemendur hefji og ljúki námi á háskólastigi.