dómsmálaráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um ökklabönd og farbann.
Fyrirspurnin hljóðar svo: Telur ráðherra koma til greina að taka upp notkun svokallaðra ökklabanda til að tryggja
betur farbann grunaðra sakamanna?
Dómsmálaráðuneytið telur að kanna eigi til hlítar hvernig best yrði staðið að því að nýta
rafræn eftirlitskerfi til að framfylgja farbanni eða fullnustu refsinga. Rafræn ökklabönd hafa
verið í notkun með góðum árangri víðs vegar í heiminum, m.a. í Bandaríkjunum, Bretlandi
og Svíþjóð svo að dæmi séu nefnd. Rafræn ökklabönd er hægt að nýta við afplánun vægari
refsinga, t.d. vararefsingar fésekta, og með þeim yrði einnig unnt að hafa betra eftirlit með
kynferðisafbrotamönnum sem fá reynslulausn.
Með hinum rafræna tæknibúnaði má skilgreina „heita reiti“, þ.e. svæði sem sakamaður
má ekki fara til, svo sem flugvelli, hafnir o.s.frv. Nálgist sakamaður með rafrænt ökklaband
„heitan reit“ sendir tækið frá sér viðvörunarmerki til stjórnstöðvar sem kemur boðum áleiðis
til réttra yfirvalda.