Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 543. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 965  —  543. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Kanada.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Benedikt Jónsson og Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneytinu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á samningi milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Kanada, sem undirritaður var í Davos í Sviss 26. janúar sl.
    Samningurinn, sem er sá fyrsti sinnar tegundar sem Kanada gerir við ríki í Evrópu, nær fyrst og fremst til vöruviðskipta. Hann hefur jafnframt að geyma ákvæði um að viðræður um sambærilegan samning varðandi þjónustuviðskipti verði teknar upp innan þriggja ára.
    Sú fríðindameðferð sem Ísland veitir Kanada samkvæmt viðauka 2 við landbúnaðarsamning ríkjanna hefur, með einni undantekningu, þegar verið veitt fyrir vörur sem upprunnar eru í löndum Evrópusambandsins. Undantekningin er sú að í samningnum við Kanada er veitt lækkun á tolli af frystum, sneiddum eða skornum kartöflum (tollskrárnúmer 2004.1002) úr 76% í 46%, en lækkunin er tilkomin að kröfu Kanadamanna.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Bjarni Benediktsson og Guðfinna S. Bjarnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 7. maí 2008.



Árni Páll Árnason,


varaform., frsm.


Steingrímur J. Sigfússon.


Ásta R. Jóhannesdóttir.


                             

Siv Friðleifsdóttir.


Lúðvík Bergvinsson.


Kristinn H. Gunnarsson.



Björk Guðjónsdóttir.