Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 520. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1123  —  520. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um Landeyjahöfn.

Frá samgöngunefnd.


    
    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur og Jóhann Guðmundsson frá samgönguráðuneyti, Hermann Guðjónsson og Sigurð Ás Grétarsson frá Siglingastofnun og Elliða Vignisson og Pál Scheving frá Vestmannaeyjabæ.
    Umsagnir um málið bárust frá Landgræðslu ríkisins, Vegagerðinni, Hafnasambandi Íslands, Siglingastofnun Íslands, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og Vestmannaeyjabæ.
    Með frumvarpinu er lagt til að byggð verði ferjuhöfn í Bakkafjöru í Landeyjum sem alfarið verði fjármögnuð úr ríkissjóði og rekin af ríkinu.
    Á fundum sínum ræddi nefndin m.a. um eignarhald og rekstrarform hafnarinnar að framkvæmdum loknum en samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að yfirstjórn verði í höndum samgönguráðherra. Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir um að sveitarfélögin Rangárþing eystra og Vestmannaeyjabær ættu að koma að rekstri hafnarinnar. Um framkvæmdina gætir nokkurrar sérstöðu þar sem hún er hugsuð til að bæta samgöngur milli lands og Vestmannaeyja en framkvæmdin sjálf verður í öðru sveitarfélagi, þ.e. í Rangárþingi eystra. Telur nefndin að á þessu stigi málsins sé ekki rétt að gera breytingar á frumvarpinu í þá veru enda liggur ekki fyrir samkomulag milli sveitarfélaganna og ríkisins hvernig því ætti að vera háttað.
    Á fundum nefndarinnar var einnig rætt um hafnarframkvæmdina en hafnalög ná ekki til einstakra framkvæmda af þessu tagi og því nauðsynlegt að setja sérstök lög um hana. Nefndin leggur þess vegna áherslu á nauðsyn þess að setja almennan lagaramma um þær ferjuhafnir og ferjubryggjur sem ríkissjóður veitir fjármuni til í fjárlögum.
    Nefndin telur málið stórt hagsmunamál og að það verði til mikilla bóta fyrir samgöngur milli Vestmannaeyja og lands.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
    Árni Þór Sigurðsson og Guðjón A. Kristjánsson eru samþykkir áliti þessu með fyrirvara.

Alþingi, 24. maí 2008.



Steinunn Valdís Óskarsdóttir,


form., frsm.


Ólöf Nordal.


Herdís Þórðardóttir.



Karl V. Matthíasson.


Árni Þór Sigurðsson,


með fyrirvara.


Árni Johnsen.



Guðni Ágústsson.


Ármann Kr. Ólafsson.


Guðjón A. Kristjánsson,


með fyrirvara.