135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1167 — 432. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á nokkrum lögum á auðlinda- og orkusviði.
(Eftir 2. umr., 28. maí.)
I. KAFLI
Breyting á vatnalögum, nr. 20 31. mars 2006, með síðari breytingum.
1. gr.
Takmarkanir á varanlegu framsali opinberra aðila á eignarrétti á vatni.
Ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum, sem alfarið eru í eigu þeirra, er óheimilt að framselja beint eða óbeint og með varanlegum hætti eignarrétt að vatni sem hefur að geyma virkjanlegt afl umfram 10 MW.Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að framselja réttindi til ríkis, sveitarfélags eða félags sem alfarið er í eigu ríkis og/eða sveitarfélaga og sérstaklega er stofnað til að fara með eignarhald þessara réttinda.
Ríki, sveitarfélögum og félögum í þeirra eigu, sbr. 2. mgr., er heimilt að veita tímabundið afnotarétt að réttindum skv. 1. mgr. til allt að 65 ára í senn. Handhafi tímabundins afnotaréttar skal eiga rétt á viðræðum um framlengingu réttarins þegar helmingur umsamins afnotatíma er liðinn.
Við ákvörðun um það hverjum skuli veittur afnotaréttur skal gæta jafnræðis. Þá skal gæta þess að ákvörðunin stuðli að hagkvæmri nýtingu auðlinda og fjárfestinga í mannvirkjum.
Forsætisráðherra skal semja um endurgjald (leigu) fyrir afnotarétt réttinda undir yfirráðum ríkisins skv. 3. mgr. Um ráðstöfun og endurgjald fyrir nýtingu réttinda í þjóðlendum fer samkvæmt ákvæðum laga þar að lútandi.
II. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65 27. mars 2003, með síðari breytingum.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
a. Við 1. mgr. bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Dreifiveitu, þar sem fjöldi íbúa á dreifiveitusvæðum veitunnar er 10.000 eða fleiri, er óheimilt að stunda aðra starfsemi en þá sem henni er nauðsynleg til að geta rækt skyldur sínar samkvæmt sérleyfum og lögum þar að lútandi. Dreifiveitu er þó heimilt að stunda aðra starfsemi sem hefur sambærilega stöðu. Stjórn dreifiveitu skal vera sjálfstæð gagnvart öðrum fyrirtækjum sem stunda vinnslu, flutning eða sölu raforku eftir því sem nánar er ákveðið í samþykktum hennar.
b. Við greinina bætist ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:
Dreifiveita skal ávallt vera í meirihlutaeigu ríkis, sveitarfélaga og/eða fyrirtækja sem eru alfarið í eigu þessara aðila.
5. gr.
Sölufyrirtæki sem heimilt er að stunda sérleyfisstarfsemi er óheimilt að niðurgreiða söluna með sérleyfisstarfseminni eða starfsemi sem hefur sambærilega stöðu. Fyrirtæki skulu í bókhaldi sínu halda reikningum vegna sölustarfsemi aðskildum frá annarri starfsemi. Um bókhaldslegan aðskilnað fer að öðru leyti skv. 41. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu,
nr. 57 10. júní 1998, með síðari breytingum.
6. gr.
Ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum, sem alfarið eru í eigu þeirra, er óheimilt að framselja beint eða óbeint og með varanlegum hætti eignarrétt að jarðhita og grunnvatni umfram heimilis- og búsþarfir, sbr. 1. mgr. 10. gr. og 14. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að framselja réttindi til ríkis, sveitarfélags eða félags sem alfarið er í eigu ríkis og/eða sveitarfélaga og sérstaklega er stofnað til að fara með eignarhald þessara réttinda.
Ríki, sveitarfélögum og félögum í þeirra eigu, sbr. 2. mgr., er heimilt að veita tímabundið afnotarétt að réttindum skv. 1. mgr. til allt að 65 ára í senn. Handhafi tímabundins afnotaréttar skal eiga rétt á viðræðum um framlengingu réttarins þegar helmingur umsamins afnotatíma er liðinn.
Við ákvörðun um það hverjum skuli veittur afnotaréttur skal gæta jafnræðis. Þá skal gæta þess að ákvörðunin stuðli að hagkvæmri nýtingu auðlinda og fjárfestinga í mannvirkjum.
Forsætisráðherra skal semja um endurgjald (leigu) fyrir afnotarétt réttinda undir yfirráðum ríkisins skv. 3. mgr. Um ráðstöfun og endurgjald fyrir nýtingu réttinda í þjóðlendum fer samkvæmt ákvæðum laga þar að lútandi.
7. gr.
8. gr.
IV. KAFLI
Breyting á orkulögum, nr. 58 29. apríl 1967, með síðari breytingum.
9. gr.
10. gr.
Hitaveita sem starfar á grundvelli einkaleyfis skal ávallt vera í meirihlutaeigu ríkis, sveitarfélaga og/eða fyrirtækja sem eru alfarið í eigu þessara aðila.
V. KAFLI
Breyting á vatnalögum, nr. 15 20. júní 1923, með síðari breytingum.
11. gr.
Ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum, sem alfarið eru í eigu þeirra, er óheimilt að framselja beint eða óbeint og með varanlegum hætti rétt til umráða og hagnýtingar því vatni sem hefur að geyma virkjanlegt afl umfram 10 MW.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er heimilt að framselja réttindi til ríkis, sveitarfélags eða félags sem alfarið er í eigu ríkis og/eða sveitarfélaga og sérstaklega er stofnað til að fara með eignarhald þessara réttinda.
Ríki, sveitarfélögum og félögum í þeirra eigu, sbr. 3. mgr., er heimilt að veita tímabundið afnotarétt að réttindum skv. 2. mgr. til allt að 65 ára í senn. Handhafi tímabundins afnotaréttar skal eiga rétt á viðræðum um framlengingu réttarins þegar helmingur umsamins afnotatíma er liðinn.
Við ákvörðun um það hverjum skuli veittur afnotaréttur skal gæta jafnræðis. Þá skal gæta þess að ákvörðunin stuðli að hagkvæmri nýtingu auðlindanna og fjárfestinga í mannvirkjum.
Forsætisráðherra skal semja um endurgjald (leigu) fyrir afnotarétt réttinda undir yfirráðum ríkisins skv. 4. mgr. Um ráðstöfun og endurgjald fyrir nýtingu réttinda í þjóðlendum fer samkvæmt ákvæðum laga þar að lútandi.
12. gr.
Gildistaka.
13. gr.
Brottfall annarra laga.
1. Lög nr. 98/1935, um virkjun Fljótaár.
2. Lög nr. 92/1947, um ný orkuver og nýjar orkuveitur rafmagnsveitna ríkisins.
3. Lög nr. 34/1949, um ný orkuver og nýjar orkuveitur rafmagnsveitna ríkisins.
4. Lög nr. 12/1951, um ný orkuver og nýja orkuveitu rafmagnsveitna ríkisins.
5. Lög nr. 65/1956, um ný orkuver og nýjar orkuveitur rafmagnsveitna ríkisins.
6. Lög nr. 111/1970, um virkjun Lagarfoss.
7. Lög nr. 60/1981, um raforkuver.
8. Lög nr. 102/1985, um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja Kröfluvirkjun í Suður- Þingeyjarsýslu.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.
III.
Við gildistöku laga þessara skal forsætisráðherra skipa nefnd til að fjalla um fyrirkomulag varðandi leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins. Nefndin skal í störfum sínum fjalla um leigugjald, leigutíma, endurnýjun leigusamninga og önnur atriði er lúta að réttindum og skyldum aðila. Þá skal nefndin meta hvaða aðgerða sé þörf til að tryggja í senn sjálfbæra og hagkvæma nýtingu auðlindanna. Í störfum sínum skal nefndin m.a. hafa til hliðsjónar reynslu annarra þjóða. Þá skal nefndin huga að því með hvaða hætti verði valið á milli þeirra sem áhuga hafa á að nýta auðlindirnar. Nefndin skal skila tillögum sínum fyrir 1. júní 2009.