eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara.
Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra talar fagurlega um að allir geti vel við unað. Allir geti vel unað við þetta frumvarp og svo talar hann fagurlega um að þingmenn deili kjörum með almenningi í landinu.
Ég er margbúinn að benda á að þingmenn deila ekki kjörum með almenningi í landinu. Hvað á ég að þurfa að segja það oft? 80% af þjóðinni borgar í almenna lífeyrissjóði. Þeim er gert samkvæmt lögum frá Alþingi að borga í sinn lífeyrissjóð, bændum í Lífeyrissjóð bænda, sjómönnum í Lífeyrissjóð sjómanna, verslunarmönnum í Lífeyrissjóð verslunarmanna o.s.frv. Þeim er gert að gera þetta.
Svo eru þessir sjóðir skertir og réttindaávinnslan er 1,3–1,5% á meðan hún er 1,9% hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Þetta er bara ekki sambærilegt. Réttindi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins eru pikkföst á meðan hin eru breytileg og munu lækka. Þingmenn deila því alls ekki kjörum með almenningi í landinu. Þeir deila kjörum með opinberum starfsmönnum í landinu. Það er bara allt annar handleggur. Það eru ekki nema 20% kjósenda, 20% almennings. Ég bara bið því hæstv. ráðherra að gæta þess að fara a.m.k. með rétt mál.
Svo er hér lagt til að þeir sem eru með þessi ofurlaun megi ekki vinna jafnframt. Er meiningin að beita þessu á B-deildina líka? B-deildin er nefnilega líka með ofurlaun, ofurlífeyrisrétt, og þar geta menn unnið jafnframt því að taka ellilífeyri. Spurningin er því: Hvað segir hæstv. heilbrigðisráðherra sem er formaður BSRB við því? Hvað mundi hann segja við því ef hæstv. fjármálaráðherra færi nú að skerða þessi réttindi öllsömul, ef menn vinna áfram eftir þeir hefja töku ellilífeyris?