Varamaður

Mánudaginn 30. mars 2009, kl. 15:03:31 (6048)

136. löggjafarþing — 117. fundur,  30. mars 2009.

Varamenn taka þingsæti.

[15:03]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Arnbjörgu Sveinsdóttur, um að Geir H. Haarde, 1. þm. Reykv. s., geti ekki sótt þingfundi á næstunni sökum læknismeðferðar. 1. varamaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Dögg Pálsdóttir, tekur sæti á Alþingi í dag. Hún hefur áður setið á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.