Tekjuskattur

Miðvikudaginn 15. apríl 2009, kl. 14:26:55 (7523)


136. löggjafarþing — 132. fundur,  15. apr. 2009.

tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.

366. mál
[14:26]
Horfa

Frsm. efh.- og skattn. (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir framhaldsnefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, og lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, frá efnahags- og skattanefnd.

Málinu var vísað til nefndarinnar að lokinni 2. umræðu og hefur nefndin fjallað um málið á ný og fengið á sinn fund Indriða H. Þorláksson og Ingibjörgu Helgu Helgadóttur frá fjármálaráðuneyti, Kristján Skarphéðinsson frá iðnaðarráðuneyti, Ingvar J. Rögnvaldsson og Guðrúnu Jennýju Jónsdóttur frá ríkisskattstjóra, Bryndísi Kristjánsdóttur frá skattrannsóknarstjóra ríkisins, Finn Oddsson og Harald I. Birgisson frá Viðskiptaráði, Ásgeir Margeirsson frá Geysi Green Energy, Stefán Pétursson frá Landsvirkjun, Elínu Smáradóttur frá Orkuveitu Reykjavíkur, Ásgeir Á. Ragnarsson og Áslaugu Gunnlaugsdóttur frá BBA-Legal, Gunnar Egil Egilsson og Völu Valtýsdóttur frá Deloitte hf. og Símon Þór Jónsson og Ágúst K. Guðmundsson frá KPMG hf.

Nefndin ræddi nánar um 1. gr. frumvarpsins um skattlagningu vaxtagreiðslna úr landi og áhrif hennar á íslenskt viðskiptalíf í ljósi ríkjandi efnahagsaðstæðna. Skiptar skoðanir komu fram um þetta atriði.

Fulltrúar fjármálaráðuneytis áréttuðu að tilgangur ákvæðisins lyti ekki einvörðungu að því að koma í veg fyrir skattasniðgöngu heldur jafnframt að tryggja íslenska ríkinu eðlilega hlutdeild í verðmætasköpun hér á landi. Gætt hefði vaxandi tilhneigingar til að færa hagnað úr fyrirtækjum á formi vaxtatekna í stað arðgreiðslna sem almennt sæta skattlagningu. Einnig væri fyrirsjáanlegt við núverandi aðstæður í efnahagsmálum að vaxtagreiðslur úr landi færðust í aukana.

Öndvert við það sem nefndin tók fram í áliti sínu fyrir 2. umræðu málsins töldu Viðskiptaráð og fulltrúar þeirra orkufyrirtækja og endurskoðunarskrifstofa sem nefndin ræddi við að ákvæði tvísköttunarsamninga mundu í mörgum tilvikum ekki girða fyrir að skatturinn legðist á hinn erlenda lánveitanda, skattbyrði sem á endanum yrði borin af innlendum lántaka. Lánsfjármagns væri þar að auki víðar að leita en í ríkjum sem gerðir hafa verið tvísköttunarsamningar við.

Nefndin telur að framangreindar athugasemdir gefi tilefni til að skoða betur hvaða áhrif 1. gr. frumvarpsins geti haft á aðgang íslenskra fyrirtækja að erlendu lánsfé.

Nefndin leggur áherslu á að þegar að loknum næstu kosningum verði, með hliðsjón af tilgangi greinarinnar, haldið áfram að leita leiða sem tryggt geta íslenska ríkinu eðlilega hlutdeild í vaxtagreiðslum úr landi.

Nefndin ræddi hvort fresta ætti gildistöku greinarinnar eða fella hana brott. Nefndin telur í ljósi núverandi efnahagsaðstæðna að fyrrnefndi kosturinn geti raskað möguleikum íslenskra fyrirtækja til fjármögnunar. Taldi nefndin að það mætti alls ekki tefla því í neina tvísýnu og leggur því til að 1. gr. falli brott ásamt tengdum greinum. Það verði skoðað strax eftir kosningar hvernig ná megi þeim markmiðum sem greinin kveður á um og það verði skoðað af meiri gaumgæfni og meiri yfirvegun hvort þetta hafi áhrif á fjármögnunarleiðir íslenskra fyrirtækja á þessum tímum þegar fjármálakreppa ríkir í heiminum öllum og aðgangur að lánsfé er erfiðari en um áratugaskeið og það má að sjálfsögðu ekkert verða til að raska aðgengi íslenskra félaga að erlendu lánsfé núna þegar mest við liggur.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingum:

1. 1., 4., 5. og 9.–11. gr. falli brott.

2. 12. gr. orðist svo: Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði 2. gr. koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda árið 2011 vegna tekna ársins 2010 og eigna í lok þess árs.

3. Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Grétar Mar Jónsson sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur álitinu.

Undir álit þetta rita Björgvin G. Sigurðsson, formaður og framsögumaður, Pétur H. Blöndal, Ellert B. Schram, Gunnar Svavarsson, Árni Þór Sigurðsson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Jón Bjarnason, Birkir J. Jónsson og Illugi Gunnarsson.

Töldum við nefndarmenn, bæði í minni hluta og meiri hluta, mikilvægt að nefndin sameinaðist ef þess væri kostur um þetta frumvarp og þær breytingar sem gera þyrfti og varð þessi tillaga okkar, að fella þetta ákvæði brott og skoða betur strax að loknum kosningum hvernig ná mætti markmiðunum, að lokum til þess að nefndin sameinaðist um málið og ritar öll undir álitið og er það mjög gott. Við fórum vel yfir málið í nefndinni og vörðum til þess miklum tíma eins og nauðsynlegt var, málið er yfirgripsmikið og mjög mikilvægt í alla staði, allar greinar þess. Ástæða er til að þakka öllum okkar gestum sem mættu, sumir oftar en einu sinni, á nefndarfundi til að fjalla um þetta mikilvæga mál.