Rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008

Fimmtudaginn 27. nóvember 2008, kl. 11:38:37 (1601)


136. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2008.

rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.

180. mál
[11:38]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í framhaldi af svari hv. þm. Ögmundar Jónassonar langar mig að spyrja hvað hann á við og biðja hann um að rökstyðja þetta betur fyrir mér og sjálfsagt fleirum sem hafa hlustað. Hvað átti hann við og hvað á hann við þegar hann segir að ekki hafi verið sofið heldur vaktin staðin fyrir viðskiptalífið?