Rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008

Fimmtudaginn 27. nóvember 2008, kl. 15:37:15 (1628)


136. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2008.

rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.

180. mál
[15:37]
Horfa

Flm. (Sturla Böðvarsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég vil í lok þessarar umræðu þakka fyrir mjög málefnalegar og góðar ræður sem hér hafa verið fluttar um frumvarpið og vænti þess og veit að þær eru mjög gott og mikilvægt innlegg fyrir umfjöllun allsherjarnefndar.