Umgengni um nytjastofna sjávar

Föstudaginn 12. desember 2008, kl. 14:50:58 (2193)


136. löggjafarþing — 55. fundur,  12. des. 2008.

umgengni um nytjastofna sjávar.

120. mál
[14:50]
Horfa

Karl V. Matthíasson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar til að gleðjast yfir þeim orðum sem hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson lét hér falla um þorskstofninn okkar. Af því tilefni langar mig aðeins til að spyrja hann út í það hvaða hugmyndir hann hafi um hve miklu megi bæta við í veiðum og þá færa rök fyrir því.