Þingfrestun

Mánudaginn 22. desember 2008, kl. 20:04:37 (2982)


136. löggjafarþing — 68. fundur,  22. des. 2008.

þingfrestun.

[20:04]
Horfa

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 136. löggjafarþings, frá 20. desember 2008 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 20. janúar 2009.

Gjört í Reykjavík, 19. desember 2008.

Ólafur Ragnar Grímsson.

_____________

Geir H. Haarde.

Bréf forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis frá því síðastliðinn laugardag lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis 136. löggjafarþings er frestað.

Leyfi ég mér að þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir vel unnin störf á þessu erfiða og óvenjulega haustþingi um leið og ég óska þeim svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.