Fundargerð 136. þingi, 129. fundi, boðaður 2009-04-07 19:50, stóð 19:52:00 til 21:54:19 gert 8 14:2
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

129. FUNDUR

þriðjudaginn 7. apríl,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

[19:52]

Umræðurnar voru sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fóru þannig fram að hver þingflokkur fékk 22 mínútur til umráða sem skiptust í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmaður utan flokka talaði síðastur í fyrstu umferð og hafði 6 mínútur.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum:

Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna voru:

Fyrir Sjálfstæðisflokk töluðu í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 3. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Ragnheiður Elín Árnadóttir, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, en í þeirri þriðju Kristján Þór Júlíusson, 1. þm. Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingar voru: Í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Árni Páll Árnason, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Guðbjartur Hannesson, 2. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Birkir J. Jónsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Helga Sigrún Harðardóttir, 3. þm. Suðurkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð töluðu í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri umferð Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, en Jón Bjarnason, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, en Karl V. Matthíasson, 7. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og Grétar Mar Jónsson, 10. þm. Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumaður utan flokka, Kristinn H. Gunnarsson, 9. þm. Norðvesturkjördæmis, talaði í fyrstu umferð.

[21:54]

Útbýting þingskjals:

Fundi slitið kl. 21:54.

---------------