Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 113. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 214  —  113. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Sifjar Friðleifsdóttur um fund með fjármálaráðherra Breta.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða málefni voru rædd og hverjir voru viðstaddir fund ráðherra með fjármálaráðherra Breta 2. september sl.? Óskað er eftir því að ráðherra birti í svarinu minnisblöð sem tengjast fundinum.

    Ráðherra fundaði 2. september sl. með Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands. Á fundinum ræddu ráðherrarnir almennt um aðstæður á mörkuðum og viðskipti landanna. Meginefni fundarins var um það að æskilegt væri að færa innstæðureikninga hjá útibúi Landsbankans í London í breskt dótturfélag. Bresk stjórnvöld höfðu unnið að því um nokkurt skeið ásamt íslenskum stjórnvöldum að fá Landsbankann til að flytja innstæður svokallaðra Icesave-reikninga úr útibúinu í breskt dótturfélag. Bresk stjórnvöld gerðu mjög stífar kröfur um flutning eigna Landsbankans til Bretlands og um tímamörk fyrir eignaflutninginn. Tilgangurinn með fundinum var að fara fram á að bresk stjórnvöld heimiluðu að innlánsreikningarnir yrðu fluttir í breskt dótturfélag strax, en að Landsbankanum yrði gefinn eðlilegur frestur til skipulegs flutnings á eignum á móti innstæðum þannig að fjármögnunarsamningar bankans röskuðust sem minnst. Ráðherra tók ekki saman formlegt minnisblað um fundinn annað en það sem fram kemur að ofan um efni fundarins.
    Auk viðskiptaráðherra sóttu fundinn af Íslands hálfu sendiherra Íslands í Bretlandi, ráðuneytisstjórinn í viðskiptaráðuneytinu, ráðuneytisstjórinn í fjármálaráðuneytinu, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu og aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.