Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 280. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 567  —  280. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands.

Frá meiri hluta viðskiptanefndar (ÁI, GSv, LB, HöskÞ, BJJ).



     1.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:
                  Í stað orðsins „Bankastjórn“ í 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. laganna kemur: Seðlabankastjóri.
     2.      Við 3. gr. Greinin orðist svo:
                  23. gr. laganna orðast svo:
                  Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra til fimm ára í senn. Seðlabankastjóri og aðstoðarseðlabankastjóri skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum. Aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabankastjóra eða aðstoðarseðlabankastjóra tvisvar sinnum. Seðlabankastjóri ber ábyrgð á rekstri bankans og fer með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru falin öðrum með lögum þessum. Aðstoðarseðlabankastjóri er staðgengill seðlabankastjóra.
                  Við skipun í embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra skal forsætisráðherra skipa þriggja manna nefnd er hafi það hlutverk að leggja mat á hæfni umsækjenda. Skal einn nefndarmaður skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabanka Íslands og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar.
                  Forfallist seðlabankastjóri eða aðstoðarseðlabankastjóri getur forsætisráðherra sett menn tímabundið í stöður þeirra.
                  Seðlabankastjóri setur reglur um umboð starfsmanna og aðstoðarseðlabankastjóra til að skuldbinda bankann með undirskrift sinni og skulu reglurnar staðfestar af bankaráði, sbr. 28. gr.
     3.      Við 4. gr.
                  a.      Við 1. efnismgr. bætist: og fjármálastöðugleika.
                  b.      2. efnismgr. orðist svo:
                     Í peningastefnunefnd situr seðlabankastjóri, aðstoðarseðlabankastjóri, einn af yfirmönnum bankans á sviði mótunar eða stefnu í peningamálum og tveir sérfræðingar á sviði efnahags- og peningamála sem forsætisráðherra skipar til fimm ára í senn. Seðlabankastjóri er jafnframt formaður peningastefnunefndar. Peningastefnunefnd er ályktunarhæf ef fjórir af fimm nefndarmönnum sitja fund nefndarinnar. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu teknar með einföldum meiri hluta, en falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns eða staðgengils hans. Peningastefnunefnd skal halda fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Auk þess getur peningastefnunefnd haldið fund ef formaður ákveður eða þrír nefndarmenn krefjast þess. Peningastefnunefnd setur sér starfsreglur sem bankaráð staðfestir um undirbúning, rökstuðning og kynningu ákvarðana sinna í peningamálum. Opinberlega skal birta fundargerðir peningastefnunefndar og gera grein fyrir ákvörðunum nefndarinnar og forsendum þeirra. Peningastefnunefnd getur þó ákveðið að skýra ekki frá ákvörðunum um viðskipti á gjaldeyrismarkaði skv. 18. gr.
        c.    Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                     Peningastefnunefnd skal gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári. Skal efni skýrslunnar rætt á sameiginlegum fundi efnahags- og skattanefndar, fjárlaganefndar og viðskiptanefndar.
     4.      Við 5. gr.
               a.      Á eftir orðinu ,,Seðlabankastjóra“ í 1. efnismgr. komi: og aðstoðarseðlabankastjóra.
               b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                     Nefndarmönnum í peningastefnunefnd sem forsætisráðherra skipar er óheimilt að sinna störfum utan bankans sem geta verið til þess fallin að draga óhlutdrægni þeirra í efa. Forsætisráðherra hefur úrskurðarvald ef ágreiningur rís um beitingu þessa ákvæðis. Forsætisráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um hæfisskilyrði nefndarmanna í peningastefnunefnd.
     5.      Við 7. gr.
               a.      Á eftir orðinu ,,seðlabankastjóra“ í efnismálslið c-liðar komi: aðstoðarseðlabankastjóra.
               b.      F-liður orðist svo: Í stað orðsins „bankastjórn“ í j-, l-, m- og n-lið kemur: seðlabankastjóri.
               c.      Við bætist nýr stafliður sem orðist svo: E-liður orðast svo: Staðfesta reglur sem seðlabankastjóri setur um umboð starfsmanna bankans og aðstoðarseðlabankastjóra til þess að skuldbinda bankann, sbr. 23. gr.
     6.      Við 9. gr. Greinin orðist svo:
                  Eftirfarandi breytingar verða á 35. gr. laganna:
            a.    Í stað orðsins „bankastjórar“ í 1. mgr. kemur: seðlabankastjóri, aðstoðarseðlabankastjóri, nefndarmenn í peningastefnunefnd.
            b.    Í stað orðsins „bankastjórum“ í 2. mgr. kemur: seðlabankastjóra, aðstoðarseðlabankastjóra, nefndarmönnum í peningastefnunefnd.
     7.      Við ákvæði til bráðabirgða II.
           a.      Í stað orðanna „nýtt embætti seðlabankastjóra laust“ í 2. málsl. komi: nýtt embætti seðlabankastjóra og nýtt embætti aðstoðarseðlabankastjóra laus.
           b.      3. málsl. falli brott.
           c.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                     Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 23. gr. laganna skal forsætisráðherra við gildistöku laga þessara setja tímabundið menn sem uppfylla skilyrði laga þessara í embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra. Um þessa tímabundnu setningu gilda ekki ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 6. gr. eða 1. mgr. 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Settur seðlabankastjóri og settur aðstoðarseðlabankastjóri skulu gegna embætti þar til skipað hefur verið í stöðurnar á grundvelli auglýsinga samkvæmt ákvæðum laganna.
     8.      Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                  Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 23. gr. laganna skal forsætisráðherra er hann skipar aðstoðarseðlabankastjóra að undangenginni auglýsingu í fyrsta sinn eftir gildistöku laganna skipa hann til fjögurra ára í stað fimm ára eins og mælt er fyrir um í ákvæðinu.
                  Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 24. gr. laganna skal forsætisráðherra er hann skipar sérfræðinga í peningastefnunefnd samkvæmt ákvæðinu í fyrsta sinn við gildistöku laganna skipa einn sérfræðing til þriggja ára og annan til fjögurra ára í stað fimm ára eins og í ákvæðinu greinir.