um jöfnun samkeppnisstöðu framleiðslufyrirtækja á landsbyggðinni með endurskoðun á
reglum ÁTVR.
Flm.: Kristján Þór Júlíusson, Gunnar Svavarsson.
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að taka til endurskoðunar reglur um móttöku og
dreifingu ÁTVR í þeim tilgangi að jafna stöðu fyrirtækja á landsbyggðinni.
Greinargerð.
Tillaga þessi byggist á vinnu starfshóps um fyrirkomulag flutningsjöfnunar sem skipaður
var af viðskiptaráðherra árið 2007 og skilaði af sér skýrslu í júlí 2008. Í skýrslunni eru
kynntar tillögur nefndarinnar til að jafna flutningskostnað þannig að hann verði fyrirtækjum
ekki verulega íþyngjandi. Rannsóknir hafa sýnt að kostnaður við flutning á vöru til og frá
fyrirtækjum sem starfa utan helsta þéttbýlissvæðis landsins skekkir samkeppnisstöðu þeirra
á innanlandsmarkaði og í útflutningi.
Í reglum ÁTVR, um vöruval og sölu áfengis og skilmála í viðskiptum við birgja nr. 481/
2008, sem settar eru með heimild í reglugerð nr. 883/2005 um Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins, er að finna dæmi um regluverk þar sem flutningskostnaður íþyngir fyrirtækjum á
landsbyggðinni. Þar segir að hverja pöntun skuli afhenda sérstaklega í vöruhúsi ÁTVR í
Reykjavík. Samkvæmt reglum þessum hefur ÁTVR eina móttökustöð fyrir áfengi á landinu
öllu sem staðsett er í Reykjavík. Það gefur auga leið að þetta fyrirkomulag skekkir mjög
samkeppnisstöðu áfengisframleiðenda á landsbyggðinni. Þessu ætti að vera auðvelt að breyta
og ekkert virðist standa því í vegi að ÁTVR taki á móti vörum á fleiri stöðum, t.d. í hverjum
landsfjórðungi. Á þennan hátt mætti koma í veg fyrir að vöru yrði ekið fram og til baka um
landið með tilheyrandi kostnaði og óþarfa fyrirhöfn. Auk þess starfar fjöldi fólks á landsbyggðinni við framleiðslustörf af þessu tagi en þau störf gætu verið í hættu vegna þessa
mismunar á aðstöðu framleiðenda. Fyrir þessari breytingu má færa bæði þjóðhagsleg rök og
byggðarök auk þess sem almenn sanngirnissjónarmið hníga að því að regluverki þessu verði
breytt og hlutur landsbyggðarinnar réttur og samkeppnisstaða framleiðenda þar styrkt. Loks
er rétt að geta þess að í skýrslu starfshóps um fyrirkomulag flutningsjöfnunar kemur fram að
veittar hafa verið óformlega undanþágur frá reglum þessum til afhendingar sem renna enn
frekari stoðum undir þá skoðun að hægur vandi sé að breyta framkvæmd þessari.