Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 162. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Prentað upp.

Þskj. 679  —  162. mál.
Viðbót. Breyttur texti.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 6/2002, um tóbaksvarnir, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðisnefnd.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðríði Þorsteinsdóttur og Guðrúnu W. Jensdóttur frá heilbrigðisráðuneyti, Þórð Reynisson frá fjármálaráðuneyti, Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur frá ÁTVR, Viðar Jensson og Báru Sigurjónsdóttur frá Lýðheilsustöð og Ásgeir Johansen og Atla Kristjánsson frá Rolf Johansen & Company. Þá bárust umsagnir frá Philip Morris AB, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis, umboðsmanni barna, Landssambandi eldri borgara, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Lýðheilsustöð, Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, Félagi íslenskra stórkaupmanna, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélagi Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Krabbameinsfélagi Íslands, landlæknisembættinu og Landspítala.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í frumvarpinu eru lagðar til tvær efnisbreytingar til samræmis við tilskipanir Evrópuþingsins og ráðs Evrópusambandsins. Önnur varðar heimild ráðherra til að setja ákvæði um varúðarmerkingar tóbaks í formi litmynda en hin útfærslu á undanþágum sem leyfðar eru frá auglýsingabanni tóbaksvarnalaga. Í annan stað eru lagðar til tvær formbreytingar sem varða annars vegar 1. málsl. 4. mgr. 6. gr. og hins vegar 2. mgr. 8. gr. og er vísað til þess í athugasemdum að þær hafi verið tilkynntar til Eftirlitsstofnunar EFTA. Loks gerir frumvarpið ráð fyrir að heimild Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til að gefa út verðskrá fyrir tóbak falli brott en að því er ekki sérstaklega vikið í athugasemdum frumvarpsins. Nefndinni var tjáð að breytingin kæmi m.a. til vegna athugasemdar frá Eftirlitsstofnun EFTA og telur nefndin því rétt að benda á að ekki eru lengur ákvæði í lögunum sem kveða á um heimild ÁTVR til að ákveða verð tóbaks í smásölu. Nefndin áréttar jafnframt að ekki er um efnisbreytingu að ræða þar sem ÁTVR verður eftir sem áður heimilt að birta verð á því tóbaki sem stofnunin selur í heildsölu. Enn fremur skal áréttað að verðlisti tóbaks telst ekki vera auglýsing í skilningi laganna og því taka ákvæði um auglýsingabann tóbaks ekki til verðlista ÁTVR.
    Á fundum nefndarinnar kom fram að frumvarpið fylgdi eftir þróun tóbaksvarna innan Evrópusambandsins þar sem rannsóknir bentu til þess að varúðarmerkingar í formi litmynda næðu til breiðari hóps en hefðbundnar textamerkingar. Nefndin bendir á að við útfærslu reglna um varúðarmerkingar í formi litmynda verði tekið mið af framkvæmd sem viðhöfð var við setningu reglugerðar nr. 236/2003, um viðvörunarmerkingar á tóbaki og mælingar og hámark skaðlegra tóbaksefna.
    Nefndin styður frumvarpið og bendir á að flestar umsagnir hafi verið mjög jákvæðar í garð frumvarpsins, en huga verði að reglugerðabreytingum samfara afgreiðslu frumvarpsins. Það er þjóðhagslegur ávinningur af því að draga úr tóbaksnotkun og stuðningur til reykleysis er þar mikilvægur þáttur. Upplýsingum um þennan þátt tóbaksvarna væri hægt að koma á framfæri á nýjum merkimiðum tóbaksvara sem seldar eru hér á landi. Loks bendir nefndin á mikilvægi þess að fylgst sé með tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um myndmerkingar á tóbaksvörum hvað varðar form, gerð og stærð litmyndanna og þau tilmæli höfð til hliðsjónar við setningu reglugerða um þetta efni.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Álfheiður Ingadóttir og Kristinn H. Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 5. mars 2009.



Þuríður Backman,


form., frsm.


Ásta Möller.


Ellert B. Schram.



Eygló Harðardóttir.


Pétur H. Blöndal.