Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 19. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 832  —  19. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til l. um breyt. á barnaverndarlögum og barnalögum.

Frá félags- og tryggingamálanefnd.


    Málinu var vísað til nefndarinnar að lokinni 2. umræðu og hefur nefndin fjallað um málið að nýju. Nefndin fékk á sinn fund Hrefnu Friðriksdóttur frá félags- og tryggingamálaráðuneyti og Bryndísi Helgadóttur og Jóhönnu Gunnarsdóttur frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti.
    Ábending kom frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti þess efnis að ekki væri nauðsynlegt að fella inn í barnalög fortakslaus ákvæði um að óheimilt sé að beita barn líkamlegum og andlegum refsingum heldur sé nægilegt að slíkt bann sé í barnaverndarlögum, sbr. fyrri breytingartillögur nefndarinnar. Þá var bent á að unnið væri að því í ráðuneytinu að endurskoða ákvæði barnalaga um forsjá, búsetu og umgengni. Því væri eðlilegt að bíða með breytingu á barnalögum þar til þeirri endurskoðun lyki.
    Ekki virðist vera ágreiningur um það hjá hlutaðeigandi ráðuneytum að nægilegt sé að bannið sé fært í barnaverndarlögin. Breytingar sem nefndin lagði til á barnaverndarlögum kveða skýrt á um refsinæmi þess að beita barn hvers konar ofbeldi eða sýna af sér aðra vanvirðandi háttsemi gagnvart barni og á það við hver svo sem beitir ofbeldinu, þ.e. hvort sem um er að ræða foreldri eða forsjáraðila eða aðra. Nefndin telur því rétt að bíða með breytingu á barnalögum enda þurfi hugsanlega frekari skoðunar við hvað viðkemur orðalagi og staðsetningu ákvæðisins í lagatextanum. Nefndin áréttar jafnframt að aðrar breytingar sem nefndin lagði til og gerð er grein fyrir í nefndaráliti og breytingartillögum nefndarinnar, sbr. þskj. 772 og 773, séu nægilegar til að bregðast við dómi Hæstaréttar í máli nr. 506/2008 og til að tryggja það að fulltrúi barnaverndarnefndar geti verið viðstaddur skýrslutökur af barni hjá lögreglu og fyrir dómi.
    Nefndin hefur fengið þær upplýsingar að endurskoðun barnaverndarlaga sem og vissra ákvæða barnalaga standi yfir. Lögin heyra undir sitt hvort ráðuneytið, hin fyrri undir félags- og tryggingamálaráðuneyti og hin síðari dóms- og kirkjumálaráðuneyti og eru sérfræðinefndir að störfum í báðum ráðuneytum. Nefndin beinir því til hlutaðeigandi ráðuneyta að hafa samráð um endurskoðunina og þær breytingar sem af henni leiðir. Þá telur nefndin að það yrði mjög til bóta ef málin yrðu tekin fyrir á þingi á sama tíma og hægt væri að hafa heildstæða umfjöllun um efni þeirra. Jafnframt ítrekar nefndin mikilvægi þess að hugtakanotkun í 99. gr. barnaverndarlaga verði skoðuð með tilliti til þess að nota annað orð í stað lauslætis. Vísar nefndin í því samhengi til þess að árið 2007 var gerð sú breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, að orðið vændi kom í stað lauslætis. Nefndin leggur þó áherslu á að sérstök sjónarmið varðandi börn verði höfð að leiðarljósi og notast verði við hugtak sem samrýmist verndarsjónarmiðum gagnvart börnum.
    Auk þeirrar breytingar sem gerð er grein fyrir hér að framan leggur nefndin til aðrar smávægilegar breytingar til leiðréttingar á texta en ítrekar að þeim breytingum fylgir ekki breyting á inntaki eða merkingu ákvæða og vísar í þeim efnum til umfjöllunar í áliti nefndarinnar um málið og breytingartillagna á þskj. 772 og 773.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGUM:


     1.      Við 2. gr. Á eftir orðunum „svo og“ í 1. efnismálsl. komi: skýrslutöku.
     2.      Við 3. gr. Í stað orðanna „eða annarri vanvirðandi háttsemi, hótunum eða ógnunum“ komi: hótunum eða ógnunum eða sýnir af sér aðra vanvirðandi háttsemi gagnvart barni.
     3.      Við 4. gr. Greinin falli brott.
     4.      Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002, með síðari breytingum.

    Ármann Kr. Ólafsson, Árni Johnsen, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Helga Sigrún Harðardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 25. mars 2009.



Þórunn Sveinbjarnardóttir,


form., frsm.


Þuríður Backman.


Kristinn H. Gunnarsson.



Ragnheiður Ríkharðsdóttir.


Jón Bjarnason.