Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 847, 136. löggjafarþing 422. mál: náms- og starfsráðgjafar (heildarlög, EES-reglur).
Lög nr. 35 3. apríl 2009.
Starfsheitið náms- og starfsráðgjafi.
Rétt til að kalla sig náms- og starfsráðgjafa og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi menntamálaráðherra, sbr. 2. mgr.
Leyfi skv. 1. mgr. skal veita umsækjanda sem lokið hefur námi í náms- og starfsráðgjöf frá háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu menntamálaráðherra samkvæmt lögum nr. 63/2006.
Matsnefnd.
Leiki vafi á hvort umsækjandi um leyfi til þess að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi fullnægi þeim skilyrðum sem kveðið er á um í lögum þessum skal leita umsagnar matsnefndar sem menntamálaráðherra skipar til fjögurra ára í senn.
Matsnefnd skal skipuð þremur fulltrúum, einum frá félagi náms- og starfsráðgjafa, einum tilnefndum af samstarfsnefnd um háskólastigið og einum án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Jafnmarga varamenn skal skipa á sama hátt.
Nánar skal kveðið á um starfshætti matsnefndar í reglugerð.
Réttindi sem aflað er í ríki innan EES eða í aðildarríki EFTA.
Menntamálaráðherra skal staðfesta leyfi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi samkvæmt umsókn ríkisborgara frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins eða Færeyjum ef viðkomandi leggur fram vottorð um viðurkennd réttindi í ríki innan svæðisins eða Færeyjum í samræmi við skilyrði tilskipunar 89/48/EBE, sbr.
lög nr. 83/1993, um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum, með áorðnum breytingum.
Samkvæmt umsókn frá ríkisborgara aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu skal ráðherra staðfesta leyfi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi með sömu skilyrðum og tilgreind eru í 1. mgr., enda leggi viðkomandi fram vottorð um viðurkennd réttindi í aðildarríki samtakanna.
Leyfisveiting.
Menntamálaráðherra er heimilt að veita þeim sem eru í starfi þegar lög þessi öðlast gildi leyfi það sem um ræðir í 1. mgr. 1. gr. enda þótt þeir uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. 1. gr. Áður en leyfi er veitt skal leita umsagnar matsnefndar.
Þagnarskylda.
Náms- og starfsráðgjafa er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins. Þagnarskyldan helst þótt viðkomandi láti af starfi.
Skyldur náms- og starfsráðgjafa.
Náms- og starfsráðgjafa ber að þekkja skyldur sínar samkvæmt lögum, viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar er varða fagið.
Náms- og starfsráðgjafar bera ábyrgð á þeirri ráðgjöf sem þeir veita.
Reglugerðarheimild.
Ráðherra getur sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd laga þessara, m.a. reglur um skilyrði fyrir veitingu leyfis og hvernig staðið er að veitingu og afturköllun leyfis.
Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Breytingar á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
Þingskjal 847, 136. löggjafarþing 422. mál: náms- og starfsráðgjafar (heildarlög, EES-reglur).
Lög nr. 35 3. apríl 2009.
Lög um náms- og starfsráðgjafa.
1. gr.
Leyfi skv. 1. mgr. skal veita umsækjanda sem lokið hefur námi í náms- og starfsráðgjöf frá háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu menntamálaráðherra samkvæmt lögum nr. 63/2006.
2. gr.
Matsnefnd skal skipuð þremur fulltrúum, einum frá félagi náms- og starfsráðgjafa, einum tilnefndum af samstarfsnefnd um háskólastigið og einum án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Jafnmarga varamenn skal skipa á sama hátt.
Nánar skal kveðið á um starfshætti matsnefndar í reglugerð.
3. gr.
Samkvæmt umsókn frá ríkisborgara aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu skal ráðherra staðfesta leyfi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi með sömu skilyrðum og tilgreind eru í 1. mgr., enda leggi viðkomandi fram vottorð um viðurkennd réttindi í aðildarríki samtakanna.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
Náms- og starfsráðgjafar bera ábyrgð á þeirri ráðgjöf sem þeir veita.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
- Lög um grunnskóla, nr. 91/2008:
- 2. mgr. 11. gr. orðast svo:
- 3. mgr. 13. gr. orðast svo:
- Lög um framhaldsskóla, nr. 92/2008:
- 3. mgr. 8. gr. orðast svo:
- Orðin „náms- og starfsráðgjafa“ í 1. málsl. 5. mgr. 8. gr. falla brott.
- 1. mgr. 37. gr. orðast svo:
Samþykkt á Alþingi 30. mars 2009.