Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 342. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 886  —  342. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar (ÁPÁ, ÁI, ÁÓÁ, ÁÞS, SF).



     1.      Á undan 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                 4. mgr. 202. gr. laganna fellur brott.
     2.      Efnismálsgreinar 1. gr. orðist svo:
                 Hver sem greiðir eða heitir greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
                 Hver sem greiðir eða heitir greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi barns undir 18 ára aldri skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.