Einkavæðing bankanna -- upplýsingagjöf til nefnda -- Icesave o.fl.

Þriðjudaginn 09. júní 2009, kl. 13:31:42 (1095)

137. löggjafarþing — 17. fundur,  9. júní 2009.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að þar sem fimm þingmenn hafa beðið um orðið undir dagskrárliðnum Störf þingsins mun forseti haga umræðunni þannig að hann gefur hv. þingmanni orðið, síðan þeim sem hann vill eiga orðastað við og svo næsta þingmanni sem hafði sent inn beiðni og svo koll af kolli.