Bankasýsla ríkisins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er enn þá ögn hugsi, ekki eingöngu yfir þessu frumvarpi til laga um Bankasýslu ríkisins heldur yfirleitt hugsi um það að okkur dettur enginn annar strúktúr, ef við getum orðað það svo, í hug en ný stofnun ef við ætlum að veita aðhald og sjá um umsýslu. Ég vil láta í ljós þá skoðun mína á því.
Ég vil spyrja hv. þingmann aftur. Ef breytilegt form, hvort heldur um er að ræða ohf. eða eignarhaldsfélag eða hvað svo sem það er, ef fyrirtækið er 100% í eigu ríkisins hvernig svo sem eignarhaldið eða fyrirtækisheitið er, er ekki alltaf ábyrgð ríkisins á sínum fyrirtækjum á sama hátt og eigendur annarra fyrirtækja bera ábyrgð á sínum fyrirtækjum eða getur ríkið stofnað hér hlutafélag og sett það síðan á hausinn og ákveðið að þurfa ekki að bera ábyrgð? Mig langar bara, af því að þekking mín nær ekki lengra og hv. þingmaður er hagfræðingur, að hv. þingmaður svari þessum fyrirspurnum, frú forseti.