ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Samningsstaða Íslands markast af öðrum hlutum og var þegar orðin eins og raun ber vitni og því verður ekki svo léttilega breytt. (Gripið fram í: En ætlaðir þú ekki að breyta?) Ég er líka upptekinn af framtíðinni fyrst og fremst í þessu máli. En við þurfum auðvitað að skilja hvernig málið varð til. Það er eðlilegt og réttmætt að fara líka yfir það. Við þurfum auðvitað líka að rannsaka þá atburði, upplýsa þá og reyna að endurheimta eignir. Inni í þessum samningi er mikilsvert ákvæði um það að nú fáum við aðstoð Breta og Hollendinga í því verkefni í framhaldinu.
Hv. þingmaður talar eins og Alþingi standi frammi fyrir frjálsu vali, að við séum bara af einhverri meinbægni að leggja til hundruð milljarða skuldbindingar sem menn geti bara komist undan með því að hafna þessu máli. Stöndum við frammi fyrir einhverju frjálsu vali í þessum efnum? Svarið er nei. Málið er þarna og það hverfur ekki. (Gripið fram í.) Þess vegna þýðir ekkert að tala svona. Það er barnaskapur og óraunsæi að ræða þetta mál eins og við stöndum frammi fyrir einhverjum einföldum og góðum valkostum á aðra hönd. (HöskÞ: Uppgjöf.) Þeir eru ekki í boði. (Gripið fram í.)