ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður rekur hér ýmsa þætti. Það sem mestu máli skiptir er auðvitað að þetta skjal, þetta minnisblað sem var undirritað af formanni samninganefndarinnar, ráðuneytisstjóranum í fjármálaráðuneytinu, Baldri Guðlaugssyni, það er ekki minna skuldbindandi en svo að það var rekið upp í nasirnar á samninganefndarmönnum Íslands núna degi fyrir undirritun þegar þeir kölluðu eftir því að sérstaklega yrði vísað (Gripið fram í.) til sameiginlegra viðmiðana í samningnum sem nú er búið að gera. Þá var sérstaklega óskað eftir því af hálfu íslensku samninganefndarinnar að vísað yrði til sameiginlegu viðmiðananna. Þá komu viðsemjendur okkar, Hollendingar, og sögðu: „Ja, þá skulum við líka vísa til samningsins sem búið var að gera og við erum núna að vera svo rausnarlegir að víkja frá.“ (Gripið fram í.) Hann er því ekki minna skuldbindandi en svo. Það er ósanngjarnt að (Forseti hringir.) ganga gegn þeirri ríkisstjórn sem axlar ábyrgð á því að vinna út frá (Forseti hringir.) þessum forsendum sem þarna hafa verið markaðar og Sjálfstæðisflokkurinn ber sannanlega ábyrgð á, (Forseti hringir.) að ganga gegn henni og gefa þeim skilningi undir (Forseti hringir.) fótinn að núverandi ríkisstjórn (Forseti hringir.) hafi komið að þessu máli þannig að hún hafi haft frjálst (Forseti hringir.) val um alla kosti.