Aðildarumsókn að Evrópusambandinu

Föstudaginn 10. júlí 2009, kl. 13:35:38 (2895)


137. löggjafarþing — 38. fundur,  10. júlí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[13:35]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu þar sem hann fór í gegnum hvernig hann hefði miðlað málum milli gagnsærra og gagnstæðra sjónarmiða. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvað hann meinar sjálfur. Vill hv. þm. Árni Þór Sigurðsson ganga í Evrópusambandið og afsala sér hluta af fullveldi og sjálfstæði Íslands?