aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég get ekki ímyndað mér stöðu Íslands í Evrópusambandinu eftir 60 ár, hv. þingmaður, því ég er algerlega á móti því að ganga í Evrópusambandið. (Gripið fram í.) Ég get því bara ekki ímyndað mér það. Ég held því miður að ef við förum þá leið þá verðum við orðinn hluti af einhvers konar samsuðu, búin að tapa okkar þjóðareinkennum og öðru slíku.
Ég vil taka það fram fyrst ég er kominn í ræðustól að ég lagði mikið á mig á flokksþingi Framsóknarflokksins til að ná fram þeirri ályktun sem þar var gerð til að reyna að skapa sátt um þetta mál. Sú tillaga sem hér er liggur fyrir frá meiri hlutanum og meiri hluta í nefndarálitinu uppfyllir ekki það sem þar var gert, því miður. Hún uppfyllir það ekki. Ég get því ekki stutt þessa tillögu. Ef þessi tillaga hefði hins vegar verið samþykkt á flokksþinginu þá hefði ég að sjálfsögðu unnið eftir henni. En ég er andstæðingur Evrópusambandsins og er á móti því að ganga í Evrópusambandið.