Aðildarumsókn að Evrópusambandinu

Miðvikudaginn 15. júlí 2009, kl. 14:23:46 (3428)


137. löggjafarþing — 44. fundur,  15. júlí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[14:23]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseta hefur verið bent á að yfir stendur fundur í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og hefur komið ósk fram um það að ekki verði haldinn fundur hér í þingsal á meðan fundur stendur yfir í nefndinni. Er talið að um 15 mínútur séu eftir af þeim fundi þannig að forseti hyggst fresta þessum fundi um 15 mínútur. (Gripið fram í.)