Aðildarumsókn að Evrópusambandinu

Fimmtudaginn 16. júlí 2009, kl. 12:38:04 (3573)


137. löggjafarþing — 45. fundur,  16. júlí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[12:38]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Bhr):

Frú forseti. Ég er ekki á móti aðildarviðræðum. Mér finnst þetta aftur á móti vera kolrangur tími til að fara í aðildarviðræður. Mér finnst að þjóðin eigi að fá að kjósa um það að fara í aðildarviðræður. Þess vegna segi ég já.