Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Fimmtudaginn 20. ágúst 2009, kl. 16:54:51 (4235)


137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[16:54]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Bhr) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka spurninguna einfaldlega út af því að ég er eiginlega í hálfgerðu sjokki yfir vinnubrögðunum hérna. Þegar ég heyrði af því í gær á þingflokksformannafundi klukkan rúmlega sex að minni hlutinn fengi aðgang að nefndarstarfsmönnum klukkan átta um kvöldið til að klára álit sitt og ættu að vinna að þessu í nótt, þá féllust mér eiginlega hendur. Ég vona að við munum leggja mikið kapp á að reyna að breyta þessum vinnubrögðum þegar kemur að haustþingi.