ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég hygg að það séu óþarflega miklar áhyggjur hjá hv. þingmanni þegar hún spyr hvort Bretar og Hollendingar mundu reyna að yfirkeyra okkur og keyra okkur niður. Þeir eru sjálfir komnir í klemmu. Þeir hafa bunað og talað af sér, kannski á sama tíma og við höfum talað of lítið. Það hefði verið gott að senda marga úr okkar liði út á markaðinn, út á örkina, út á akurinn og tala máli okkar víða um Evrópu.
Það sem kæmi einfaldlega út úr höfnun er að það yrði að ganga til samninga strax. Auðvitað bíða þeir eftir samþykki frá Íslandi vegna þess að ef Ísland samþykkir samninginn eins og hann er erum við búin að viðurkenna margar skuldbindingar sem voru í þeim slæma samningi sem upphaflega kom á borðið. (Forseti hringir.) (VigH: Þess vegna er ekki hægt að samþykkja hann.) Þess vegna er ekki hægt að samþykkja hann, það er alveg rétt.
Ef, virðulegi forseti, ef þetta er keyrt svona áfram lýsi ég einfaldlega (Forseti hringir.) yfir því: Förum úr NATO, (Forseti hringir.) förum úr Norðurlandaráði og vinnum með einhverjum sem vilja vinna með okkur en ekki traðka á okkur.