Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Fimmtudaginn 20. ágúst 2009, kl. 23:24:49 (4367)


137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[23:24]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mér þykir þessi umræða með ólíkindum, að (Gripið fram í: Ha?) Evrópusambandið sé búið að koma okkur í þessi vandræði. (VigH: Reglugerðafargan.) Ég held að við ættum að líta okkur nær. Ég held að við ættum að líta okkur miklu nær. (VigH: Þetta eru reglur …) Og ég held að sumir flokkar sem helst grípa fram í í umræðunni í dag ættu að líta sér miklu nær. (Gripið fram í: Flokkar grípa ekki fram í.)