Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Föstudaginn 21. ágúst 2009, kl. 10:32:46 (4389)


137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[10:32]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er svo sem ekkert miklu við þetta að bæta, ég var búinn að svara þeim spurningum sem hér koma fram. Eftir stendur samningurinn óhreyfður, samningarnir báðir, engu einasta orði í þeim hefur verið breytt. Þeir standa algjörlega óbreyttir orð fyrir orð.