Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Föstudaginn 21. ágúst 2009, kl. 11:43:42 (4412)


137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[11:43]
Horfa

Atli Gíslason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég er ósammála skilningi þessa ágæta meðþingmanns míns og flokksfélaga Björns Vals Gíslasonar, ég er ósammála hans útleggingu á þessu og það er ekki í samræmi við það upplegg sem við nokkrir þingmenn í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði lögðum upp með í leiðangurinn. Þeir fyrirvarar sem settir voru í vinnu nefndarinnar eða nefndanna, fjárlaganefndar eftir 20., 22.–23. júlí skipta fyrir mér sköpum og breyttu afstöðu minni til málsins. Það er svo einfalt.