ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég ætla að svara þessu skýrt og skorinort eins og mér er tamt. Já, ég held að það sé mjög gott að skýra þessi mál enn frekar þannig að allir geti túlkað þau á sem samræmdastan hátt og skilið þau á þann hátt sem við viljum að þau skiljist. Það hlýtur auðvitað að vera viðfangsefni fjárlaganefndar núna í framhaldinu. Og eins og ég segi, ég held að það sé óumdeilanlegur akkur fyrir þjóðarhag að halda áfram í farvegi þeirrar breiðu samstöðu sem hefur náðst og náð sem flestum inn og ég trúi því að það muni áfram takast þannig að við getum náð ásættanlegri lendingu og það sem fyrst í þessu erfiða máli og þannig haldið áfram af reisn og sanngirni, borið okkar byrðar en krafist þess að þær íþyngi okkur ekki þannig að við kiknum undan þeim.