Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Fimmtudaginn 27. ágúst 2009, kl. 15:57:15 (4644)


137. löggjafarþing — 58. fundur,  27. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[15:57]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á því að hér í þingsalnum er enginn þingmaður meiri hlutans, ekki einn einasti. Síðast þegar ég leit á var enginn á mælendaskrá. Hér er heldur enginn ráðherra að fylgjast með umræðunni í einhverju mesta hagsmunamáli íslensku þjóðarinnar fyrr og síðar.

Ég óska eftir því, hæstv. forseti, að þeir ráðherrar sem hvað mesta ábyrgð bera á málinu verði kallaðir hér í salinn.