Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 35. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 110  —  35. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt á l. nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóra og Ólaf Friðriksson skrifstofustjóra frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, Ernu Bjarnadóttur og Eirík Blöndal frá Bændasamtökum Íslands, Sigurð Eyþórsson og Sigurgeir Sindra Sigurgeirsson frá Landssambandi sauðfjárbænda og Baldur Helga Benjamínsson og Sigurð Loftsson frá Landssambandi kúabænda.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Það er samið að tilhlutan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og í samráði við Bændasamtök Íslands. Tilgangur frumvarpsins er að lögfesta nauðsynlegar breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum vegna breytinga á samningum um starfsskilyrði sauðfjárræktar og mjólkurframleiðslu. Í frumvarpinu eru einnig lagðar til minni háttar breytingar á heimild til greiðslu álags vegna gæðastýringar í sauðfjárrækt til hagsbóta fyrir kaupendur fjárskiptafjár.
    Breytingar á búvörusamningum um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu og sauðfjárræktar voru undirritaðar 18. apríl sl. og fela þær breytingar í megindráttum í sér samningsbundna eftirgjöf af hálfu kúa- og sauðfjárbænda af fullum fjárframlögum í tvö til þrjú ár vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem uppi er í ríkisbúskapnum. Á móti fá þeir tryggingu fyrir framlengingu samningstímabilsins um tvö ár, sem væntanlega leiðir til aukins rekstraröryggis.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Björn Valur Gíslason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. júní 2009.



Ólína Þorvarðardóttir,


varaform., frsm.


Sigurður Ingi Jóhannsson.


Arndís Soffía Sigurðardóttir.



Róbert Marshall.


Álfheiður Ingadóttir.


Helgi Hjörvar.