Almenningssamgöngur

Þriðjudaginn 02. mars 2010, kl. 17:21:10 (0)


138. löggjafarþing — 84. fundur,  2. mars 2010.

almenningssamgöngur.

14. mál
[17:21]
Horfa

Flm. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um almenningssamgöngur sem ég flyt ásamt hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, Atla Gíslasyni, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur og Þuríði Backman. Hér er um að ræða frumvarp sem má segja að sé gamall kunningi en það var áður flutt á 136. löggjafarþingi. Því var vísað til samgöngunefndar og rétt er að geta þess að nefndinni bárust þá nokkrar umsagnir um málið. Þær voru að vísu ekki mjög margar en þær sem bárust voru almennt jákvæðar, þó að gerðar væru athugasemdir við nokkur atriði. Í núverandi búningi er frumvarpið að mestu óbreytt en þó hefur að nokkru leyti verið tekið tillit til ábendinga í þeim umsögnum sem bárust á 136. löggjafarþingi.

Hér er um að ræða frumvarp um heildarlöggjöf á sviði almenningssamgangna. Frumvarpið markar viss tímamót vegna þess að til þessa hefur ekki verið til staðar heildarlöggjöf á sviði almenningssamgangna þar sem skilgreind er ábyrgð og markmið með almenningssamgöngum eða fjármögnun þeirra tryggð. Í 1. gr. þessa frumvarps segir, með leyfi forseta:

„Markmið laga þessara er að stuðla að öflugum, öruggum og hagkvæmum almenningssamgöngum í lofti, á láði og legi með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Enn fremur að auka hlutdeild almenningssamgangna í samgöngum almennt, bæta skipulagningu þeirra og tryggja fjármögnun. Við skipulag almenningssamgangna skal hafa hliðsjón af þjóðhagslegri hagkvæmni og markmiðum stjórnvalda og alþjóðaskuldbindingum í umhverfismálum, m.a. í því skyni að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.“

Segja má að í þessari 1. gr. sé reynt að hnýta saman þau mikilvægu meginmarkmið sem eiga að mati flutningsmanna þessa frumvarps að liggja að baki skipulagi og rekstri almenningssamgangna, þ.e. að tryggja að bæði á landi, í lofti og legi, séu skipulagðar markvissar almenningssamgöngur. Þær eiga að vera öflugar, þær eiga að vera öruggar og hagkvæmar og markmiðið eða leiðarljósið á að vera sjálfbær þróun. Enn fremur er eitt af mikilvægustu meginmarkmiðunum samkvæmt þessu frumvarpi að auka hlutdeild almenningssamgangna í samgöngum almennings. Það er í sjálfu sér mikilvægt markmið eitt og sér. Mörg sveitarfélög hafa sett sér tölusett markmið varðandi almenningssamgöngur vegna þess að á undanförnum árum hefur orðið æ meiri umræða í sveitarfélögum um mikilvægi almenningssamgangna.

Að mati flutningsmanna þessa frumvarps á það að vera mikilvægt markmið hins opinbera, löggjafans, að hlutdeild almenningssamgangna verði aukin. Meginröksemdin fyrir því er auðvitað þjóðhagsleg hagkvæmni. Þar getum við talað um þann efnahagslega sparnað sem það getur haft í för með sér fyrir samfélagið allt að almenningssamgöngur séu efldar og þannig aukinn hlutur þeirra. Það getur leitt til minni kostnaðar við margs konar innviði og stofnframkvæmdir í vegamálum og gatnamálum. Það er auðvitað sérstaklega mikilvægt á þeim tímum sem nú eru, m.a. að því er varðar orkumálin, orkugjafana, að við getum dregið úr notkun innflutts jarðefnaeldsneytis sem knýr bílaflota landsmanna að mestu.

Það er auðvitað líka mikilvægt þegar við horfum á viðskiptajöfnuðinn við útlönd að við getum aukið hlut almenningssamgangna og þar með dregið úr þeirri miklu fjárfestingu sem liggur í hinum almenna bílaflota. Hér er líka talað um þjóðhagslega hagkvæmni sem markmið við skipulag almenningssamgangna en þar hafa verið gerðar rannsóknir, m.a. eftir því sem ég best veit af hálfu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagslega hagkvæmni almenningssamgangna þar sem kemur fram að hún er gríðarlega mikil. Einnig er vísað til markmiða stjórnvalda og alþjóðaskuldbindinga í umhverfismálum, m.a. í því skyni að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þar höfum við tekist á herðar ákveðnar skuldbindingar sem við eigum að sjálfsögðu að reyna að uppfylla, enda er tilgangurinn með því að gangast undir slíkar skuldbindingar að sjálfsögðu sá að þær séu uppfylltar. Aukin hlutdeild almenningssamgangna er tvímælalaust þáttur í því. Ég held að enginn ágreiningur sé um að með því móti getum við dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Í frumvarpinu er kveðið á um að samgönguráðherra fari með yfirstjórn þessa málaflokks. Við gerum tillögu um það í 3. gr. frumvarpsins að landinu öllu verði skipt í ákveðin þjónustusvæði almenningssamgangna og það eigi að gerast í samgönguáætlun samkvæmt lögum um samgönguáætlun. Þar eigi að koma fram hvernig landinu er skipt í þjónustusvæði og þá verði skilgreind þjónustuþörf og markmið hvers svæðis fyrir sig. Sú skilgreining þarf að sjálfsögðu að taka mið af þeim meginmarkmiðum sem lögð eru til grundvallar í 1. gr. og að sjálfsögðu þarf að taka mið af hagsmunum hvers svæðis fyrir sig, enda geta þau verið æði mismunandi.

Í 4. gr. er gerð tillaga um að opinberir aðilar, ríki og sveitarfélög, beri ábyrgð á að almenningssamgönguþjónusta sé veitt samkvæmt lögum þessum og í samræmi við ákvæði samgönguáætlana. Það er ekki tekin afstaða til þess með hvaða hætti sú þjónusta er veitt en ábyrgðin á því að hún sé til staðar er á herðum opinberra aðila, ríkinu að því er varðar almenningssamgöngur með flugvélum og ferjum, sem nú þegar á sér stað í takmörkuðum mæli. Hér gætu strandsiglingar fallið undir ef ákveðið verður að taka þær upp í einhverjum mæli á nýjan leik og þar er vísað til laga um loftferðir og til vegalaga. Síðan á ríkið einnig að bera ábyrgð á fyrirkomulagi almenningssamgangna með bifreiðum samkvæmt sérleyfum. Ríkið hefur það reyndar með höndum í dag og veitir sérleyfi til aksturs, fólksflutninga og farmflutninga á tilteknum sérleyfisleiðum.

Í öðru lagi er lagt til að sveitarfélög beri ábyrgð á fyrirkomulagi almenningssamgangna innan sveitarfélags með bifreiðum innan sveitarfélagsins. Þá erum við að tala um hina hefðbundnu strætisvagnaþjónustu, svo og milli sveitarfélaga sé um að ræða einkaleyfi til handa sveitarfélögum á grundvelli laga á fólksflutninga og farmflutninga. Einnig er gerð tillaga um að sveitarfélögum með meira en 10.000 íbúa sé skylt að skipuleggja almenningssamgöngur. Ég held raunar að flest sveitarfélög sem ná 10.000 íbúa markinu, sem eru reyndar ekki mörg hér á landi, skipuleggi nú þegar almenningssamgöngur með einhverjum hætti. Sveitarfélögin sinna því þessu verkefni þótt það sé ekki lögbundið en þar kemur líka til að þau hafa ekki sérstaklega tekjustofna til þess aðra en þá að greiða þann kostnað annars vegar með notendagjöldum og hins vegar af almennum útsvars- eða skatttekjum sveitarfélaganna.

Í 5. gr. er síðan fjallað um fjárframlög og m.a. um að fjárframlög ríkisins til almenningssamgangna á vegum sveitarfélaga skuli taka til stofnkostnaðar, stofnframkvæmda og innviða, svo sem vegna forgangsakreina, umferðarstýringar og búnaðar, niðurgreiðslu opinberra gjalda eða beinna rekstrarstyrkja. Það er sem sagt veitt heimild samkvæmt frumvarpinu til þess að ríkið veiti framlög til almenningssamgangna á vegum sveitarfélaga í gegnum samgönguáætlun. Það eru einhverjar fjárhæðir til almenningssamgangna í samgönguáætlun nú þegar. Þær eru ekki háar en með markvissri stefnumótun á sviði almenningssamgangna og skilgreiningu á þjónustuþörf einstakra þjónustusvæða mundi framlag ríkisins til þessa málaflokks verða ákveðið í samhengi við önnur framlög í samgönguáætlun.

Ég lít svo á, virðulegur forseti, að hér sé að mörgu leyti um tímamótafrumvarp að ræða. Það er kunnara en frá þurfi að segja að samgöngur af ýmsum toga eru hverju samfélagi mikilvægar og það er mikilvægt að boðið sé upp á fjölbreyttan samgöngumáta og að íbúar búi við visst jafnræði. Um leið þarf að tryggja að unnt sé að draga úr neikvæðum áhrifum samgangna með markmið sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi og búa þannig um hnúta að við áætlanagerð í samgöngumálum sé umhverfisrask og mengun af völdum samgangna lágmörkuð. Við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum um langt skeið lagt ríka áherslu á almenningssamgöngur, bæði á landsvísu, á vettvangi Alþingis og eins á sveitarstjórnarvettvangi, þar sem við höfum tekið þátt. Undanfarið hafa þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs lagt til að ríkið komi til móts við rekstur almenningssamgangna með frekari lækkun eða niðurfellingu á virðisaukaskatti og olíugjaldi. Þetta frumvarp er í raun framhald af málatilbúnaði flokksins í málefnum almenningssamgangna.

Í markmiðsgrein frumvarpsins sem ég hef þegar lesið er farið yfir mikilvæga þætti, t.d. umhverfismálin, þjóðhagslega hagkvæmni og mikilvægi þess að ríkið móti sér stefnu í málefnum almenningssamgangna. Þar er m.a. vísað í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem látið er að því liggja að efla eigi almenningssamgöngur. Við höfum gengist undir alþjóðlegar skuldbindingar, m.a. þar sem tekið er fram að ríkið eigi að efla almenningssamgöngur til að ná markmiðum alþjóðasáttmála á sviði umhverfismála. Það er einnig kunnara en frá þurfi að segja að almenningssamgöngur í þéttbýli hafa mikið og raunar alfarið verið á hendi sveitarfélaganna en þau hafa ekki fengið tekjustofna til að sinna þessum mikilvæga málaflokki.

Sveitarfélögin sjálf hafa í vaxandi mæli fjallað um mikilvægi þess að efla almenningssamgöngur. Það hefur komið fram á fundum alþingismanna með sveitarfélögunum, m.a. hér á höfuðborgarsvæðinu, en á þeim fundum má segja að talsmenn sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu hafi nefnt þetta sem eitt fyrsta forgangsverkefni í samgöngumálum svæðisins, þ.e. að efla almenningssamgöngur. Ég held að það sé því orðið brýnna en nokkru sinni að þessum málaflokki verði gefinn meiri gaumur, um hann sett heildarlöggjöf og tryggt að við setjum aukið fjármagn til málaflokksins og það sé þá gert eins og ég sagði áðan á grundvelli þjóðhagslegrar hagkvæmni, þjóðhagslegrar arðsemi og þjóðhagslegra arðsemisútreikninga. Ég er sannfærður um að við getum sparað þjóðarbúinu heilmikið á öðrum sviðum með því að efla almenningssamgöngur.

Ég tel sem sagt, virðulegur forseti, að hér sé mikilvægt mál á ferð sem ætti að geta orðið nokkuð góð samstaða um að veita brautargengi. Ég vænti þess að þetta mál fái góða umfjöllun á vettvangi samgöngunefndar Alþingis og vonast að sjálfsögðu til þess að fá jákvæðar umsagnir þegar málið fer í umsagnarferli á vegum nefndarinnar, sem ég geri ráð fyrir að verði gert.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessa framsögu mikið lengri. Greinargerð með frumvarpinu fer ágætlega yfir meginmarkmiðin með frumvarpinu og rökstyður hvers vegna mikilvægt er að efla almenningssamgöngur. Þar er enn fremur að finna athugasemdir við einstakar greinar. Þetta frumvarp er ekki mikið að vöxtum, aðeins sjö greinar, en hugsunin er að það myndi eins konar ramma utan um þessa mikilvægu þjónustu sem er starfsemi almenningssamgangna. Í frumvarpinu er að sjálfsögðu vísað til annarra laga, m.a. vegalaga, laga um loftferðir og laga um fólks- og farmflutninga á landi. Ég legg til, frú forseti, að frumvarpinu verði vísað til 2. umræðu og hv. samgöngunefndar til meðferðar að lokinni þessari umræðu.