Staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar

Mánudaginn 15. mars 2010, kl. 18:09:44 (0)


138. löggjafarþing — 91. fundur,  15. mars 2010.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar.

374. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. allshn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 78/1997, um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar.

Málið hefur verið til umfjöllunar í allsherjarnefnd. Með frumvarpinu er lagt til að framlag ríkissjóðs til þjóðkirkjunnar verði lækkað um 160 millj. kr. á árinu 2010 frá því sem orðið hefði að óbreyttum lögum og jafnframt að framlag ríkissjóðs til Kristnisjóðs verði lækkað samsvarandi um 9 millj. kr.

Á fundi nefndarinnar kom fram að lækkunin byggist á sérstökum viðaukasamningi frá 10. nóvember 2009 sem lagður var fyrir kirkjuþing og samþykktur. Samningurinn er viðauki við samkomulag íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997. Samningurinn er útfærður í 60. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar og því nauðsynlegt að leggja til breytingar á lögunum í samræmi við viðaukasamninginn.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt. Þór Saari sat fund allsherjarnefndar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur þessu áliti.

Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Ögmundur Jónasson og Þráinn Bertelsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nefndarálitið skrifa Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður, Árni Þór Sigurðsson, Valgerður Bjarnadóttir, Ólöf Nordal og Róbert Marshall.