Framhaldsfræðsla

Mánudaginn 15. mars 2010, kl. 18:12:59 (0)


138. löggjafarþing — 91. fundur,  15. mars 2010.

framhaldsfræðsla.

233. mál
[18:12]
Horfa

Frsm. menntmn. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. menntamálanefndar um frumvarp til laga um framhaldsfræðslu á þskj. 751.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund fulltrúa frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, fulltrúa atvinnulífsins, Öryrkjabandalagsins, framhaldsskóla og símenntunarstöðva.

Frumvarpinu er ætlað að styrkja lagalegan grundvöll framhaldsfræðslu hér á landi og gera hana að fimmtu grunnstoð íslensks menntakerfis. Stuðlar frumvarpið þannig að vexti almenns menntunarstigs þar sem einstaklingar með stutta formlega skólagöngu afli sér frekari menntunar. Jafnframt markar frumvarpið lokaáfanga í heildarendurskoðun á lagaumhverfi íslensks menntakerfis sem byggist á því að veita einstaklingum tækifæri til náms alla ævi. Þannig er horft á menntakerfið sem eina heild frá leikskóla til háskóla, til framhaldsfræðslu og til óformlegrar menntunar sem fer fram utan skólakerfisins. Á undanförnum árum hefur framhaldsfræðslu vaxið fiskur um hrygg og er hún nú margháttuð og umfangsmikil. Með frumvarpi þessu er lagður grunnur að heildstæðu kerfi framhaldsfræðslunnar þar sem einstaklingum er veittur stuðningur óháð stéttarfélagsaðild.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra fari með yfirstjórn málefna framhaldsfræðslunnar og beri ábyrgð á almennri stefnumótun hennar í samráði við hagsmunaaðila. Enn fremur ber hann ábyrgð á almennri stjórnsýslu, málefnum Fræðslusjóðs, stuðningi við þróun og nýsköpun sem og eftirliti og mati. Ráðherra getur samkvæmt frumvarpinu falið öðrum aðila að votta einstakar námskrár og námslýsingar, veita fræðsluaðilum viðurkenningu, annast fjárreiður og umsýslu með Fræðslusjóði og annast söfnun og miðlun upplýsinga um framhaldsfræðslu, samanber 15. gr. Í III. kafla er fjallað um fjárveitingar til framhaldsfræðslu og Fræðslusjóðs. Fræðslusjóður hefur það hlutverk, samkvæmt 10. gr., að stuðla að því að til séu viðeigandi námstækifæri fyrir einstaklinga og að skapa skilyrði fyrir því að einstaklingar geti nýtt sér slík tækifæri. Starfsmenntamál opinberra starfsmanna munu einnig vera á meðal verkefna sjóðsins. Samkvæmt frumvarpinu skipar ráðherra Fræðslusjóði átta manna stjórn til fjögurra ára í senn eftir tilnefningum frá aðilum vinnumarkaðarins, þ.e. frá ASÍ, SA og BSRB, félags- og tryggingamálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem tilnefna sameiginlega. Formaður stjórnar er þó skipaður án tilnefningar. Í IV. kafla er fjallað um mat og eftirlit með gæðum en frumvarpið gerir ráð fyrir að fræðsluaðilar meti sjálfir árangur og gæði fræðslustarfsins, birti opinberlega upplýsingar um innra gæðamat sitt og áætlanir um umbætur. Aftur á móti hefur ráðherra umsjón með úttektum, könnunum og rannsóknum sem miða að því að tryggja almenn gæði framhaldsfræðslu og almennan skilning og þekkingu á málefnum er henni tengjast. Að jafnaði skal slík framkvæmd vera falin óháðum aðila. Er hér um sambærilega uppbyggingu að ræða og finna má í lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008.

Álit nefndarinnar er að mikið og gott starf hafi verið unnið í gegnum Fræðslumiðstöð atvinnulífsins af aðilum vinnumarkaðarins (ASÍ og SA), í samstarfi við stjórnvöld, á sviði framhaldsfræðslu. Einstaklingar sem ekki hafa lokið prófi frá framhaldsskóla hafa fengið tækifæri til að afla sér menntunar og bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Verði frumvarpið að lögum telur nefndin að árangurinn muni aukast og undirstöður framhaldsfræðslustarfs með starfsemi símenntunarstöðva styrkjast. Með frumvarpinu er lagður grunnur að hærra menntunarstigi þjóðarinnar sem er samkvæmt skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar OECD lágt í alþjóðlegum samanburði. Enn fremur er talið að bætt menntun ófaglærðra hafi jákvæð áhrif á efnahagslífið og auki lífsgæði þeirra er sækja sér slíka þekkingu.

Nefndin fagnar þeirri áherslu í frumvarpinu að nám sem fram fer innan framhaldsfræðslunnar verði metið að verðleikum. Áréttar nefndin mikilvægi þess að einstaklingar fái tækifæri til að ljúka einingabæru námi sem tryggir viðkomandi rétt til áframhaldandi náms. Það er álit nefndarinnar að til að skapa megi heildstætt menntakerfi hér á landi verði að brúa þau bil sem kunna að vera á milli mismunandi grunnstoða þess. Verði frumvarp þetta að lögum hefur fimmta grunnstoð menntakerfisins fengið lagalegan grundvöll og leggur nefndin áherslu á mikilvægi þess að flæði milli framhaldsfræðslunnar og til að mynda framhaldsskólakerfisins sé tryggt en það gerir frumvarpið ekki að óbreyttu. Nefndin telur að með aukinni samvinnu aðila frá hinu almenna skólakerfi og framhaldsfræðslunnar náist aukið flæði milli þessara grunnstoða. Þar mun þekking og reynsla úr almenna skólakerfinu nýtast vel, t.d. við mat á einingum milli kerfa, upplýsingagjöf o.fl. Leggur nefndin því til að Félag íslenskra framhaldsskóla fái fulltrúa í stjórn Fræðslusjóðs.

Nefndin fjallaði ítarlega um menntun þeirra sem sinna framhaldsfræðslu en ekki er gerð krafa um ákveðna menntun eða aðra hæfni þeirra samkvæmt frumvarpinu. Álit nefndarinnar er að nauðsynlegt sé að kveða á um hæfni þeirra sem sinna þessari kennslu. Áréttar nefndin þó að ekki eigi alltaf við að krefjast hefðbundinnar kennaramenntunar enda getur verið mikill akkur í að leita í reynslu og þekkingu þeirra sem hafa starfað á viðkomandi sviði í langan tíma. Leggur nefndin því til breytingar á 7. gr. frumvarpsins sem gerir það að verkum að viðurkenning ráðherra til þeirra sem annast framhaldsfræðslu verði byggð á mati á færni þeirra sem annast framhaldsfræðslu með tilliti til þekkingar þeirra og reynslu ásamt öðrum atriðum sem talin eru upp í greininni, svo sem mati á aðstöðu til kennslu, skipulagi í námskrám, fjárhagslegum tryggingum og gæðakerfi með áherslu á nám fullorðinna.

Nefndin leggur jafnframt til aðrar smávægilegar breytingar er varða lagatæknileg atriði. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á þskj. 750 og eru eins og þar stendur.

Að lokum þakka ég nefndarmönnum samstarfið. Um málefnið hefur ríkt samstaða í nefndinni og einhugur um vinnu við framgang þess.