Tilkynning um dagskrá

Mánudaginn 10. maí 2010, kl. 15:00:51 (0)

138. löggjafarþing — 120. fundur,  10. maí 2010.

tilkynning um dagskrá.

[15:00]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 3.30 í dag, að loknum liðnum óundirbúinn fyrirspurnatími, fer fram umræða utan dagskrár um skatta og fjárlagagerð 2011. Málshefjandi er hv. þm. Ólöf Nordal. Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, er til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.