Vátryggingastarfsemi

Þriðjudaginn 18. maí 2010, kl. 14:21:19 (0)


138. löggjafarþing — 125. fundur,  18. maí 2010.

vátryggingastarfsemi.

229. mál
[14:21]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Frú forseti. Ég vil þakka sérstaklega fyrir þessa breytingartillögu frá meiri hlutanum af því að það hefur ítrekað komið fram á fundi nefndarinnar, og það höfum við líka upplifað sjálf sem einstaklingar, að það er ekki alltaf skýrt hverjir það eru sem standa raunverulega á bak við tilboð frá vátryggingafélögum. Með þessari breytingu er verið að leggja til að það komi mjög skýrt fram hverjir það eru sem standa raunverulega að baki þeim tilboðum sem koma frá vátryggingafélögum og það sé ekki verið að búa til einhver gervivátryggingafélög með einhverjum nýjum nöfnum.