Umfjöllun þingsins um hæstaréttardóma

Miðvikudaginn 16. júní 2010, kl. 17:23:17 (0)


138. löggjafarþing — 145. fundur,  16. júní 2010.

umfjöllun þingsins um hæstaréttardóma.

[17:23]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess vegna fyrirspurna sem komu fram á fundinum hér á undan að forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa boðað formenn flokka á sinn fund eftir nokkrar mínútur. Ákveðið hefur verið að boða til fundar í efnahags- og skattanefnd nú á eftir vegna þessa máls. Forseti mun kanna hvort menn hafa tök á að bregðast við því. Efnahags- og skattanefnd mun taka þetta fyrir nú strax í kvöld.