Tilkynning um dagskrá og tilhögun þingfundar

Fimmtudaginn 09. september 2010, kl. 10:31:19 (0)

138. löggjafarþing — 154. fundur,  9. sept. 2010.

tilkynning um dagskrá og tilhögun þingfundar.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Klukkan 11 í dag fer fram umræða utan dagskrár um efnahags- og skattstefnu ríkisstjórnarinnar. Málshefjandi er hv. þm. Birkir Jón Jónsson. Fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.

Forseti biður þingmenn um að vera undir það búna að fleiri fundir verði í dag sem og atkvæðagreiðslur. Forseti mun funda með þingflokksformönnum síðar í dag.