Málshöfðun gegn ráðherrum

Þriðjudaginn 21. september 2010, kl. 17:29:51 (0)


138. löggjafarþing — 164. fundur,  21. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

707. mál
[17:29]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að það var niðurstaða eftir nokkrar umræður að þetta yrði umræðutíminn. Þrátt fyrir að hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir hefði gert athugasemd við það á fundinum var niðurstaðan sú að hafa þennan háttinn á. Ég vona að menn geti sæst á þá niðurstöðu forseta og fari ekki að þrasa um fimm mínútur til eða frá.