138. löggjafarþing — 165. fundur, 22. sept. 2010.
málshöfðun gegn ráðherrum.
706. mál
Frú forseti. Ég hef ekki enn heyrt nein trúverðug rök fyrir því að þetta eigi að fara í allsherjarnefnd. Mér finnst allt í lagi að umsögn allsherjarnefndar sé fengin um málið en að málið fari inn í þingmannanefndina finnst mér eðlilegasti farvegurinn.