Málshöfðun gegn ráðherrum

Þriðjudaginn 28. september 2010, kl. 16:44:26 (0)


138. löggjafarþing — 169. fundur,  28. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

706. mál
[16:44]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Þetta er nokkuð sérkennilegt satt best að segja. En í þessari stöðu eins og ég sagði í fyrra svari mínu þarf engan kjark, frú forseti, það þarf sannfæringu. Sannfæring mín segir að hvorki Ingibjörg Sólrún Gísladóttir né aðrir þeir ráðherrar sem hér sæta hugsanlega ákæru eigi það skilið undir nokkrum kringumstæðum. Ég segi nei.