138. löggjafarþing — 13. fundur,  22. okt. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[12:14]
Horfa

Forseti (Siv Friðleifsdóttir):

Forseti vill að gefnu tilefni biðja bæði hæstv. ráðherra og hv. þingmenn að hætta frammíköllum. Það er stuttur tími sem ræðumaður hefur og þarf hann því líklega á þeim tíma öllum að halda.